Ofanflóðanefnd
Skipuð 2. maí 2008
Nefndin starfar samkvæmt 9. gr. laga nr. 49/1997, ásamt síðari breytingum, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um og taka afstöðu til tillagna sveitarstjórnar, um varnarvirki fyrir hættusvæði sem þegar hafa verið byggð samkvæmt aðalskipulagi og um kaup eða flutning húseigna í stað þess að reisa varnarvirki eða beita öðrum varnaraðgerðum, skv. 10. og 11. gr. laganna svo og að ráðstafa fé úr ofanflóðasjóði skv. 13. gr. laganna.
Nefndin er skipuð fjögurra ára í senn og í henni eiga sæti 3 fulltrúar. Formaður nefndarinnar skal skipaður án tilnefningar, einn tilnefndur samgönguráðherra og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Skipaðir án tilnefningar
Magnús Jóhannesson, formaður
Sigríður Auður Arnardóttir, varaformaður
Samkvæmt tilnefningu samgönguráðherra
Þráinn Sigurðsson
Ólafur H. Kárason, til vara
Samkvæmt tilnefningu Sambands ísl. sveitarfélaga
Birgir Örn Ólafsson
Torfi Jóhannesson, til vara
