Tilraunadýranefnd
Skipuð 26. febrúar 2010
Tilraunadýranefnd starfar samkvæmt 16. gr. laga nr. 15/1994, um dýravernd. Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðherra til ráðgjafar við umsjón þeirra mála sem tekur til tilrauna á dýrum og meðferðar á tilraunadýrum. Jafnframt skal nefndin tryggja að þeir sem nota dýr í tilraunaskyni hafi hlotið þjálfun og menntun í meðferð tilraunadýra.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn. Einn fulltrúi skal skipaður án tilnefningar og skal hann hafa lokið háskólanámi og hafa þekkingu og reynslu á sviði dýratilrauna og einn fulltrúi skipaður af Rannsóknastofnun í siðfræði. Yfirdýralæknir á sæti í nefndinni og er hann formaður hennar.
Lögbundinn formaður
Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir
Án tilnefningar
Sigríður Björnsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands
Jón Kalmansson
