Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
Skipuð 5. janúar 2012
Nefndin er skipuð skv. 2. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Hlutverk nefndarinnr er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana og ágreiningsmálum vegna annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála eftir því sem mælt er fyrir um í lögum á þessu sviði. Úrskurðarnefndin er sjálfstæð í störfum sínum.
Í nefndinni skulu sitja sjö fulltrúar og jafnmargir til vara. Einn nefndarmanna, sem skal vera formaður hennar og forstöðumaður og hafa starfið að aðalstarfi, er skipaður til fimm ára að undangenginni auglýsingu í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hann skal uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Staðgengill forstöðumanns er varamaður formanns og skal uppfylla sömu hæfisskilyrði og formaður. Ráðherra skipar hann að tilnefningu formanns til sama tíma og formann, eða til starfsloka hans beri þau að höndum áður en skipunartíma varaformanns lýkur.
Aðrir nefndarmenn eru skipaðir til fjögurra ára í senn og skulu þeir tilnefndir af Hæstarétti. Þeir skulu allir hafa háskólapróf. Einn skal hafa sérþekkingu á sviði skipulagsmála, einn á sviði byggingarmála, einn á sviði umhverfismála, einn á sviði jarðvísinda, orkumála og jarðrænna auðlinda og einn á sviði vistfræði og lífríkis þurrlendis, ferskvatns og sjávar. Einn skal hafa embættispróf í lögfræði eða annað háskólapróf sem verður metið jafngilt. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn.
Skrifstofa nefndarinnar er til húsa að Skúlagötu 21, 101 Reykjavík
Hjalti Steinþórsson, formaður og forstöðumaður
Ómar Stefánsson, varamaður formanns
Samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar íslands
Ásgeir Magnússon
Aðalheiður Jóhannsdóttir, til vara
Þorsteinn Þorsteinsson
Sigurður Erlingsson, til vara
Hildigunnur Haraldsdóttir
Hörður Harðarson, til vara
Geir Oddsson
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, til vara
Kristín Svavarsdóttir
Jón Ólafsson, til vara
Þóra Árnadóttir
Freysteinn Simundsson, til vara
