Svæðisráð rekstrarsvæðis 4 í Vatnajökulsþjóðgarði
Skipað 24. maí 2011
Rekstrarsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar á ábyrgð þjóðgarðsvarðar og eru mörk rekstrarsvæða tilgreind í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008, með síðari breytingum nr. 755/2009.
Svæðisráðið er skipað til fjögurra ára í senn skv. 7. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð. Í svæðisráði skulu sitja sex fulltrúar: þrír fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem eru á viðkomandi rekstrarsvæði, einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á viðkomandi svæði, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum. Svæðisráð kýs sér formann úr hópi sveitarstjórnarmanna og varaformann. Þjóðgarðsvörður situr fundi svæðisráðs.
Hlutverk svæðisráða Vatnajökulsþjóðgarðs skv. 8. gr. laganna er að vera þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði, að vinna tillögu að verndaráætlun fyrir viðkomandi svæði, að gera tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði innan þess fjárhagsramma sem því er ætlaður hverju sinni samkvæmt ákvörðun stjórnar og að gera tillögu að ráðningu þjóðgarðsvarða á viðkomandi rekstrarsvæði. Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um verkefni og starfsemi svæðisráða Vatnajökulsþjóðgarðs.
Samkvæmt tilnefningu Skaftárhrepps
Elín Heiða Valsdóttir, formaður
Samkvæmt tilnefningu Ásahrepps
Karl Ölvirsson
Samkvæmt tilnefningu Þingeyjasveitar
Sigurður Skúlason, varaformaður
Ólafía Jakobsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Ásvaldur Guðmundsson
Samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Suðurlands
Erla Ívarsdóttir
