Systkinin á Kvískerjum
![]() |
Flosi Björnsson, fæddur 13. desember 1906, dáinn 22. maí 1993. Flosi lét ekki mikið að sér kveða um hin hversdagslegu málefni samfélagsins, en aflaði sér staðgóðrar menntunar i ýmsum fræðigreinum, lagði mikla stund á jökla- og náttúrurfræði og var sjálflærður í ýmsum erlendum tungumálum með aðstoð orðabóka og málakennslu útvarpsins. Öll menntun hann byggðist á heimanámi. Það kom helst í hlut Flosa vegna málakunnáttu hans að ræða við erlenda fræðimenn sem komu að Kvískerjum. Hann kom fram í spurningaþáttum í útvarpi sem og bræður hans fleiri og var þar öllu svarað skilmerkilega. |
|---|---|
![]() |
Guðrún Björnsdóttir, fædd 30. apríl 1908, dáin 7. desember 1991. Það kom snemma í hlut Guðrúnar eldri að sjá um mikinn hlut heimilisstarfanna, einkum innanbæjar og hjálpa til við þjónustu og uppeldi yngri bræðra sinna. Hún hafði yndi af bóklestri og útiveru en gekk ekki heil til skógar og naut sín því ekki oft sem skyldi. |
![]() |
Ari Björnsson, fæddur 2. júní 1909, dáinn 1. maí 1982. Búfjárhirðing á Kvískerjum mun lengi hafa hvílt einna mest á Ara, enda mun hann ungur að árum hafa fylgt föður sínum til þeirra verka. Ari var mjög áhugasamur um að kynbæta bústofninn og nutu sveitungar hans þar góðs af. |
![]() |
Guðrún Björnsdóttir, fædd 14. júlí 1910, dáin 24. desember 1999. Guðrún yngri, ætíð kölluð Rúna átti löngum ásamt systur sinni og móður drjúgan þátt í gestamóttökum á Kvískerjum með hinum mesta myndarbrag og hlýju viðmóti. Enda voru þær allar samhuga i umönnun heimilisins. Hún var hannyrðakona og stundaði það töluvert meðan heilsan entist. |
![]() |
Páll Björnsson, fæddur 25. mars 1914, dáinn 14. mars 1993. Páll var á barnsaldri tekinn í fóstur hjá móðurafa sínum og ömmu, Ara Hálfdánarsyni og Guðrúnu Sigurðardóttur á Fagurhólsmýri og ólst hann þar upp með móðursystkinum sínum og átti þar heima til æviloka. Hann lærði á orgel hjá Bjarna Bjarnasyni á Brekkubæ í Nesjum og var organisti í Hofskirkju um nær 60 ára skeið. Hann hafði forgöngu um stofnun Slysavarnardeildar Öræfa og var fyrsti formaður hennar. Páll var verkmaður góður og hafði yndi af að kenna söng og var að öllu leyti ómetanlegur máttarstólpi heimili sínu og heimabyggð. Var lengi vitavörður í Ingólfshöfða. |
![]() |
Sigurður Björnsson, fæddur 24. apríl 1917, dáinn 10. apríl 2008. Sigurður er alkunnur félagsmála- og fræðimaður. Hann er léttur í lund, hefur skemmtilegan húmor og segir vel frá. Penninn leikur í höndum hans og hann hefur skráð sögu Öræfasveitar og ýmsar merkar frásagnir úr sveitinni. Ber þar hæst frásögn af því þegar hann lenti ofan í jökulgeil með höfuðið á undan. Æðruleysi hans vakti furðu og aðdáun en hann hafði ofan af fyrir sér, klemmdur ofan í geilinni, með því að syngja sálma. Þannig barst rödd hans til eyrna leitarmanna og hann fannst eftir margra klukkutíma leit. (Þórunn Sig) Sigurður stundaði oft vinnu utan heimilis. Hugðarefni hans hafa á síðustu árum einkum beinst að því að leita forna heimilda í byggðasögu og hefur hann gert ýmsar athyglisverðar uppgötvanir í því sviði. Sigurður hefur verið í ritnefnd Skaftfellings, sem komið hefur út frá árinu 1978 og ritað fjölmargar greinar í ritið. Einnig er að finna greinar eftir hann í Félagsvininum, riti Ungmennafélags Öræfa. Árið 2007, á nítugasta aldursári Sigurðar kom út bók hans, „Sótt fram – saga Sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu og þættir úr Öræfum“. Og er þá ekki nær allt upptalið. |
![]() |
Ingimundur Björnsson, fæddur 4. febrúar, 1921, dáinn 16. september 1962. Ingimundur var afburða röskleikamaður og velvirkur en átti oft við áhæga heilsu að búa, sem hamlaði atgervi hans. Hann var hestamaður góður og hafði yndi af veiði svo og öllum íþróttum. |
![]() |
Helgi Björnsson, fæddur 2. febrúar 1925. Helgi er einstakur hagleiksmaður og allt leikur í höndunum á honum. Hann er góður teiknari og uppfinningamaður og frumkvöðull. Hann hefur fundið upp gripi sem létta mönnum störf, til dæmis verkfæri sem gerir rúning fjárins léttari. Útsjónarsemi hans kemur vel fram í engjahúsinu sem segja má að sé fyrsta „hjólhýsið” sem framleitt er á Íslandi. (Þórunn Sig.) Helgi er verkmaður góður og listasmiður. Helgi smíðaði m.a. skírnarfontinn í Hofskirkju. |
![]() |
Hálfdán Björnsson, fæddur 14. mars 1927.
|
Heimildir: Kvískerjabók, 1998. Greinar e. Þorstein Jóhannsson og Þórunni Sigurðardóttur. Yfirlestur og góðar ábendingar: Séra Einar Jónsson, sóknarprestur á Kálfafellsstað.









