Umhverfisþing
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður var stofnaður 15. janúar 2003 af Umhverfisráðuneytinu til heiðurs Kvískerjasystkinum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Systkinin á Kvískerjum voru og eru einstök í sinni röð. Á fræðisviðinu urðu þau sín eigin Akademía svo annálað þykir.

Kvísker voru með afskekktari bæjum á landinu, en með bættum samgöngum og fjarskiptum hefur sú einangrun verið rofin. Kvískerjasjóði er ætlað að stuðla að því að framhald verði á því umfangsmikla fræða- og rannsóknarstarfi sem stundað hefur verið á Kvískerjum undanfarna áratugi.

 

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum

Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu.  Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2013.

Horft verður sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkina.

Umsóknum skal fylgja:

  • Greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.
  • Gera skal grein fyrir helstu samstarfsaðilum.
  • Gera skal grein fyrir fjárhagsáætlun verkefnisins, framlagi samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2013 og skal umsóknum skilað á rafrænu formi. 
Úthlutað verður fyrir miðjan apríl og verður öllum umsóknum svarað.

Umsóknir skal senda til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhóli á Mýrum, 781 Hornafirði. 
Netfang: sigurlaug@brunnholl.is
Merktar:  Kvískerjasjóður

Nánari upplýsingar eru veittar í síma: 478 1029 eða á netfangi: sigurlaug@brunnholl.is

 




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica