Umhverfisþing
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður var stofnaður 15. janúar 2003 af Umhverfisráðuneytinu til heiðurs Kvískerjasystkinum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Systkinin á Kvískerjum voru og eru einstök í sinni röð. Á fræðisviðinu urðu þau sín eigin Akademía svo annálað þykir.

Kvísker voru með afskekktari bæjum á landinu, en með bættum samgöngum og fjarskiptum hefur sú einangrun verið rofin. Kvískerjasjóði er ætlað að stuðla að því að framhald verði á því umfangsmikla fræða- og rannsóknarstarfi sem stundað hefur verið á Kvískerjum undanfarna áratugi.

Næsta úthlutun úr Kvískerjasjóði
Ekki verður úthlutað styrkjum úr Kvískerjasjóði árið 2012.  Auglýst verður eftir umsóknum í byrjun árs 2013 og munu upplýsingar um það birtast hér á síðunni.




 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica