Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju

Frumvarp Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að lögum um losun gróðurhúsalofttegunda var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Lögunum er ætlað að tryggja að losun gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju hér á landi verði ekki meiri en skuldbindingar Íslands samkvæmt Kýótó-bókuninni leyfa. Frumvarpið skapar stjórnvöldum tæki til að takmarka losun koldíoxíðs ef stefnir í að losun fari yfir leyfileg mörk.

Helsta nýmæli frumvarpsins er að atvinnurekstur sem losar a.m.k. 30.000 tonn koldíoxíðs á ári er skyldaður til þess að afla sér losunarheimilda sem nægja fyrir losuninni. Nú falla fjögur stóriðjufyrirtæki sem eru starfandi eða í þann veginn að hefja starfsemi undir þær skilgreiningar sem eru í frumvarpinu. Þessi atvinnurekstur og annar sem kann að falla undir ákvæði laganna á tímabilinu 2008-2012 geta aflað sér losunarheimilda með því að sækja um úthlutun til sérstakrar nefndar, sem skipuð er fulltrúum iðnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis og fjármálaráðuneytis. Nefndin úthlutar losunarheimildum innan heildar heimilda Íslands samkvæmt Kyoto-bókuninni og úthlutar þeim til atvinnureksturs eftir reglum sem tilgreindar eru í frumvarpinu. Nefndin mun strax á árinu 2007 gera áætlun um úthlutun á tímabilinu í heild, þannig að starfandi atvinnurekstur og atvinnurekstur sem hyggur á rekstur á tímabilinu 2008-2012 geti gert áætlanir til samræmis við það.

Fari hins vegar svo að atvinnurekstur losi meira magn koldíoxíðs en það fær úthlutað heimildum fyrir, þarf fyrirtækið sjálft að afla sér viðbótarheimilda með fjármögnun skógræktar- eða landgræðsluverkefna eða öflun viðurkenndra heimilda erlendis frá. Frumvarpið kemur því ekki í veg fyrir losun frá stóriðju umfram heimildir Íslands, en tryggir að kostnaður vegna slíkrar umframlosunar falli ekki á íslensk stjórnvöld og að þau gerist ekki brotleg við skuldbindingar sínar samkvæmt Kýótó-bókuninni.

Nánar um Kyoto-bókunina og íslenska ákvæðið.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum