Fréttasafn

27.12.2006

Umhverfisráðherra fylgist með dælingu úr Wilson Muuga

Við Wilson Muuga
Við Wilson Muuga
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra á strandstað ásamt Davíð Egilsyni forstjóra Umhverfisstofnunar (t.h.) og Gottskálki Friðgeirssyni sérfræðingi á framkvæmda- og eftilitssviði stofnunarinnar.

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fór á strandstað flutningaskipsins Wilson Muuga við Hvalsnes á Reykjanesi í dag og fylgdist með þegar starfsmenn Umhverfisstofnunar, björgunarsveitarmenn og starfsmenn Olíudreifingar unnu við að dæla olíu úr skipinu.

Hafist var handa við að dæla olíunnu upp úr klukkan 4 í morgun. Engir olíublautir fuglar hafa fundist í fjörum umhverfis strandstaðinn og ekkert ber á olíumengun frá skipinu. Eins og segir á heimasíðu Umhverfisstofnunar þá aukast sífellt líkurnar á því að hægt verði að afstýra alvarlegu umhverfisslysi á þessu viðkvæma svæði. Hægt er að nálgast fréttir af starfinu á strandstað á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda annast Umhverfisstofnun stjórn á vettvangi þegar mengun berst í hafið utan hafnarsvæða og ber ábyrgð á að aðgerðir gegn bráðamengun hefjist.



Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica