Fréttasafn

Nýr ráðherra í umhverfisráðuneytinu

15.9.2004

  • Sigríður Anna Þórðardóttir og Siv Friðleifsdóttir
    IMG_9038
    Sigríður Anna Þórðardóttir og Siv Friðleifsdóttir 15.9.2004

Nýr umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir tók við lyklavöldum í umhverfisráðuneytinu í dag. Hún mun næstu daga heimsækja stofnanir og starfsstöðvar ráðuneytisins. Heimsóknir umhverfisráðherra í stofnanir ráðuneytisins eru áætlaðar sem hér segir:

Fimmtudagur 16. september

Umhverfisstofnun
Úrvinnslusjóður
Skipulagsstofnun
Brunamálastofnun

Föstudagur 17. september

Náttúrufræðistofnun Íslands
Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar á Akureyri
Akureyrarsetur Náttúrufræðistofnunar Íslands
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn

Laugardagur 18. september

Þjóðgarður í Jökulsárgljúfrum

Mánudagur 20. september

Veðurstofa Íslands
Landmælingar Íslands

Síðar mun umhverfisráðherra heimsækja þjóðgarðinn Skaftafell, þjóðgarðinn Snæfellsjökul og útibú Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum.

Fréttatilkynning nr. 38/2004
Umhverfisráðuneytið



Deila grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica