Nýr upplýsingavefur um umhverfismál
Umhverfisstofnun Evrópu hefur opnað vef með upplýsingum um umhverfismál á íslensku.
Vefur Umhverfisstofnunar Evrópu er nú til á öllum tungumálum aðildarlanda stofnunarinnar. Ísland er aðili að stofnuninni, en hlutverk hennar er að veita áreiðanlegar upplýsingar um umhverfismál í Evrópu. Stofnunin þjónar bæði almenningi og öllum þeim aðilum er vinna að því að móta og framfylgja umhverfisstefnu innan Evrópusambandsins og í einstökum löndum álfunnar. Þessar upplýsingar hjálpa ríkjum Evrópu að taka upplýstar ákvarðanir um hvernig hægt er að hlúa að umhverfinu, koma að umhverfissjónarmiðum við stefnumótun í efnahagsmálum og stefna að sjálfbærri þróun. Á vef Umhverfisstofnunar Evrópu er meðal annars að finna útdrætti úr helstu skýrslum, stutt yfirlit um ástand umhverfismála, tilkynningar til fjölmiðla og upplýsingar um ýmis málefni stofnunarinnar. Íslenska vefinn er að finna á slóðinni: http://local.is.eea.eu.int/
Fréttatilkynning nr. 29/2004
Umhverfisráðuneytið

