Hoppa yfir valmynd
19. júní 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um eldishús alifugla, loðdýra og svína tekur gildi

Reglugerð um eldishús alifugla, loðdýra og svína hefur tekið gildi og samhliða því breyting á reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti. Í reglugerð um eldishús alifugla, loðdýra og svína  er m.a. kveðið á um á hvaða svæðum má byggja eldishús og um varnir gegn mengun og fjarlægðarmörk.

Meginreglan er að eldishús skuli byggja á svæðum sem skipulögð eru fyrir landbúnað, iðnað eða þar sem hefur verið mörkuð stefna í aðalskipulagi um staðsetningu eldishúsa. Sveitarstjórn á að taka ákvarðanir um fjarlægðir að teknu tilliti til hugsanlegra umhverfisþátta, í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar en þar eru settar fram lágmarksfjarlagðir að teknu tilliti til mengunarálags og hollustuhátta.

Fram að þessu hefur gilt sú regla að fjarlægðarmörk fyrir loðdýrabú, alifuglabú og svínabú séu 500 metrar frá mannabústöðum, matvælafyrirtækjum eða vinnustöðum annarra en sjálfs búsins. Undanfarin ár hefur ráðherra veitt undanþágur til eldisbúa,  eins og heimilt er samkvæmt lögum, að teknu tilliti til stærðar þeirra, tegundar eldis, tæknibúnaðar og fjarlægðar frá aðliggjandi byggð og hefur komið í ljós að ekki er unnt að hafa ein fjarlægðarmörk fyrir allt eldi. Með nýrri reglugerð eru sett mismunandi fjarlægðamörk að teknu tilliti til tegundar eldis, eðlis og umfangs. 

Þá er í reglugerðinni fjallað um mengunarvarnir og kveðið á um að fara skuli eftir bestu fáanlegu tækni við hönnun og byggingu eldishúsa. 

Reglugerð nr. 520/2015 um eldishús alifugla, loðdýra og svína.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum