Hoppa yfir valmynd
11. júní 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að reglugerð um endurnýtingu úrgangs til umsagnar

Úrgang má víða nota sem hráefni

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að nýrri reglugerð um endurnýtingu úrgangs. Reglugerðinni er ætlað að greiða fyrir endurnýtingu úrgangs og stuðla þannig að betri nýtingu hráefna.

Áhugi íslenskra fyrirtækja hefur aukist á því að nýta ýmiss konar úrgang við framleiðslu á nýjum vörum með mismunandi endurnýtingaraðferðum. Í því sambandi er mikilvægt að skýrt sé hvenær úrgangur teljist ekki lengur vera úrgangur, m.a. tilliti til þess að hann skapi ekki hættu fyrir heilbrigði manna og dýra og skaði ekki umhverfið. Einungis örfá viðmið eru til um lok úrgangsfasa og var því við gerð reglugerðardraganna litið til framkvæmdar umhverfisstofnunarinnar í Bretlandi. 

Reglugerðin mun gilda um endurnýtingu úrgangs í atvinnuskyni og er m.a. mælt fyrir um að Umhverfisstofnun skuli gefa ráðgefandi álit áður en úrgangur fer í endurnýtingu og áður en endanleg vara fer á markað. Er í því sambandi kveðið á um þá þætti sem Umhverfisstofnun skal taka mið af þegar hún veitir álit sitt um endurnýtingu úrgangs. 

Hægt er að senda inn umsagnir um drögin til fimmtudagsins 25. júní 2015 á netfangið [email protected] og í bréfpósti á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. 

Drög að reglugerð um endurnýtingu úrgangs

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum