Hoppa yfir valmynd
9. júní 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Unnið að sameiningu NÍ og RAMÝ

Merki NÍ og RAMÝ.

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað starfshóp til að hafa umsjón með sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ). Þetta er í samræmi til tillögu stýrihóps sem gerði frumathugun á samlegð stofnana á sviði rannsókna og vöktunar á náttúru Íslands og skilaði ráðherra skýrslu sinni í mars sl.

Verkefni starfhópsins verða m.a. að fara yfir rekstrarlega- og fjárhagslega þætti sameiningar, gera tillögu að skipuriti fyrir sameinaða stofnun og nauðsynlegum lagabreytingum. Jafnframt mun starfshópurinn skoða með hvaða hætti áframhaldandi rannsóknarstarfsemi RAMÝverði tryggð á svæðinu. Við sameininguna verður haft samráð við viðkomandi sveitarfélög og aðra hagaðila.

Í starfshópnum sitja:

  • Stefán Guðmundsson, formaður, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
  • Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn og
  • Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 15. september 2015.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum