Hoppa yfir valmynd
5. maí 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Reglugerð um baðstaði í náttúrunni undirrituð

Úr Bláa lóninu.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað reglugerð um baðstaði í náttúrunni. Reglugerðin hefur það að markmiði að fyrirbyggja og koma í veg fyrir slys og sýkingar, stuðla að öryggi notenda, bættum hollustuháttum og heilnæmi vatns

Baðstaðir í náttúrunni eru skilgreindir sem náttúrulaug eða baðströnd sem notuð er til baða af almenningi  þar sem vatn er ómeðhöndlað af sótthreinsiefnum, geislun eða á annan hátt. Til baðstaðar telst einnig búnings- og salernisaðstaða sem tilheyrir baðstað og önnur aðstaða fyrir baðgesti.

Samkvæmt reglugerðinni eru baðstaðir í náttúrunni flokkaðir í þrjá flokka og eru baðstaðir í 1. og 2. flokki starfsleyfisskyldir.  Rekstraraðili þessara staða á að tryggja að skilyrði reglugerðarinnar, sem og reglugerðar um hollustuhætti á sund- og baðstöðum séu uppfyllt. Ákvæðin varða meðal annars öryggi notenda, innra eftirlit, upplýsingasíðu fyrir almenning á vef Umhverfisstofnunar og örverufræðilegar rannsóknir. Baðstaðir í 3. flokki eru baðstaðir þar sem ekki er um rekstur að ræða.

Í viðauka með reglugerðinni eru sett fram viðmið fyrir heilnæmi og gæði baðvatns á baðstöðum í náttúrunni auk þess sem kveðið er á um að taka skuli saman upplýsingar fyrir baðstaði í öllum flokkum og skulu þær vera aðgengilegar baðgestum.

 Reglugerð um baðstaði í náttúrunni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum