Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verndaráætlun Breiðafjarðar undirrituð

Frá Breiðafirði

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað verndaráætlun Breiðafjarðar fyrir árin 2014 – 2019. Áætlunin er stefnumörkun Breiðafjarðarnefndar þar sem sérstöðu fjarðarins er lýst. Þá er mörkuð stefna um útfærslu stjórnunar og umsýslu vegna verndar, skipulags og framkvæmda á svæðinu og sýndar leiðir til að ná markmiðum um vernd náttúru- og menningarminja svæðisins.

Í áætluninni er fjallað um sérstöðu fjarðarins hvað varðar landslag, jarðfræði, lífríki, sögu og menningarminjar. Leggur Breiðafjarðarnefnd m.a. áherslu á að viðhalda og vernda landslag og landslagsheildir, einstakar jarðmyndanir, svæði þar sem finna má fjölbreytileika lífvera eða búsvæði sjaldgæfra tegunda og ábyrðartegundir Íslendinga.  Þá er lögð áhersla á varðveislu menningarminja, s.s. uppistandandi húsa, minja sem eru í hættu og örnefna. Eins telur nefndin aðkallandi að skrá þjóðhætti á svæðinu þar sem búseta í eyjunum fer síminnkandi.

Nefndin nefnir þrjár leiðir sem taldar eru líklegastar til að styrkja vernd svæðisins. Í fyrsta lagi að stækka verndarsvæðið og er bent á að í dag tekur vernd Breiðafjarðar til eyja, hólma og skerja á firðinum ásamt fjörum á fastalandinu innan svæðisins en nær ekki út á þau annes sem afmarka fjörðinn. Í öðru lagi að svæðið fengi skráningu sem Ramsarsvæði en Breiðafjörður er talinn uppfylla öll þau átta viðmið Ramsarsamningsins sem fjallar um vernd votlenda, og er nægilegt að svæði uppfylli eitt þeirra til að komast á skrána. Í þriðja lagi nefnir nefndin skráningu á heimsminjaskrá Menningarmálstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).

Loks er í áætluninni fjallað um þær ógnir sem steðjað geta að verndarsvæði Breiðafjarðar og möguleg viðbrögð við þeim.

Verndaráætlunin var unnin í samráði við heimafólk og aðra hagsmunaaðila, s.s. sveitarstjórnir sveitarfélaganna á verndarsvæðinu, vöktunar- og rannsóknarstofnanir, menntastofnanir á svæðinu, hagsmunasamtök bænda, ferðamálayfirvöld og ferðaþjónustuaðila sem og umhverfis- og auðlindaráðuneytið.

Verndaráætlun fyrir Breiðafjörð 2014 – 2019

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum