Hoppa yfir valmynd
12. mars 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisþing haldið 9. október

Í fjöru

Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til IX. Umhverfisþings á Grand Hótel í Reykjavík föstudaginn 9. október 2015.

Umhverfisþing er haldið skv. ákvæðum náttúruverndarlaga, en þar segir að ráðherra skuli boða til umhverfisþings að loknum hverjum alþingiskosningum og síðan tveimur árum síðar. Skv. ákvæðum laga mun þingið að þessu sinni fjalla um umhverfis- og náttúruvernd .

Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir, en alþingismönnum, fulltrúum stofnana ríkis og sveitarfélaga og fulltrúum atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka sem hafa umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á stefnuskrá sinni er lögum samkvæmt sérstaklega boðið til þingsins.

Drög að dagskrá verða birt síðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum