Hoppa yfir valmynd
9. mars 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2014

Merki kuðungsins.

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2014.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins fyrir árið 2014 sitja Ásborg Arnþórsdóttir formaður, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Ásbjörn Ólafsson fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála,  Halldóra Sigríður Sveinsdóttir fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Jóna Björk Guðnadóttir fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 1. apríl n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum