Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sigríður Auður Arnardóttir skipuð ráðuneytisstjóri

Sigríður Auður Arnardóttir
Sigríður Auður Arnardóttir

Umhverfis- og auðlindaráðherra tilkynnti í dag þá ákvörðun sína að skipa Sigríði Auði Arnardóttur í embætti ráðuneytisstjóra frá og með 1. mars næstkomandi. Þetta er gert með vísan til 36. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Sigríður Auður er með embættispróf í lögfræði  frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað í ráðuneytinu frá árinu 1998 og gegnt embætti skrifstofustjóra frá árinu 2003, á skrifstofu laga og upplýsingamála, skrifstofu laga og stjórnsýslu og á skrifstofu umhverfis og skipulags. Sigríður Auður var staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2007 til 1. mars 2014 þegar hún var settur ráðuneytisstjóri til eins árs. Stefán Thors, fráfarandi ráðuneytisstjóri, fer til starfa í forsætisráðuneytinu.

Með skipun Sigríðar Auðar gegna í fyrsta sinn fleiri konur en karlar embætti ráðuneytisstjóra í Stjórnarráði Íslands.

Sigríður Auður er gift Vilhjálmi Erni Sigurhjartarsyni viðskiptafræðingi og eiga þau dótturina Unni Svölu.  

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum