Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2015 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2015

Hreindýr.
Hreindýr.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1412 dýr á árinu sem er fjölgun um 135 dýr frá fyrra ári.

Heimildirnar skiptast þannig að leyft verður að veiða alls 782 kýr og 630 tarfa. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Auglýsing um hreindýraveiðar 2015



Hreindyrakvoti-auglysing

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum