Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opið fyrir umsóknir um styrki til rekstrar félagasamtaka á sviði umhverfismála

Bláklukka
Bláklukka

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins. Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00 15. desember 2014.

Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála.

Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem tíunduð eru í r eglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum.

M.a. þurfa samtökin að vera opin fyrir almennri aðild, þau skulu ekki starfa í hagnaðarskyni, hafa að lágmarki 30 félagsmenn, hafa opið og endurskoðað reikningshald og taka saman ársskýrslur. Loks þarf eigin fjáröflun að standa undir a.m.k. helmingi kostnaðar vegna almennrar starfsemi samtakanna.

Þá er í reglunum tíunduð viðmið sem höfð eru til hliðsjónar við úthlutun styrkjanna.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.

  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjenda auk þess sem hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli frá
  • Umsækjendur skrá sig inn og velja umhverfis- og auðlindaráðuneyti undir flipanum Eyðublöð.
  • Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Reglur um úthlutun

Nánari upplýsingar veitir Sóley Dögg Grétarsdóttir í síma 545 8600 eða í tölvupósti á netfangið [email protected].

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum