Hoppa yfir valmynd
27. maí 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland skilar landsskýrslu um innleiðingu Árósasamningsins

Arosaskyrsla

Ísland hefur skilað skýrslu sinni til Árósasamningsins um stöðu innleiðingar samningsins hér á landi. Aðildarríkjum hans ber að skila slíkum skýrslum til skrifstofu samningsins á þriggja ára fresti.

Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Aðildarríkjaráðstefna er haldin á þriggja ára fresti þar sem teknar eru ákvarðanir um framkvæmd samningsins svo sem þróunaráætlun og vinnuáætlun. Á milli aðildarríkjaráðstefna er það skrifstofan og vinnuhópur aðildarríkja sem sjá um framkvæmd samningsins og á Ísland fulltrúa í vinnuhópnum. Auk þess eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð. Þá er rekin sérstök nefnd um framfylgni (Compliance Committee) sem fylgist með framkvæmd samningsins í aðildarríkjum hans.

Síðast skiluðu aðildarríki samningsins skýrslu af þessu tagi árið 2011, áður en Árósasamningurinn var fullgiltur hér á landi og er því komið að fyrstu skýrsluskilum Íslands. Skýrslurnar eru lagðar fram á aðildarríkjaráðstefnu samningsins næstkomandi sumar, en Ísland tekur þá þátt í ríkjaráðstefnunni í fyrsta sinn.

Skýrsla Íslands um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi.
Merki Árósasamningsins

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum