Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fundað með fulltrúum félagasamtaka

Frá fundi umhverfis- og auðlindaráðherra með fulltrúum félagasamtaka.

Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fundaði á dögunum með fulltrúum frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfisvernd. Á fundinum var farið vítt og breitt yfir þau málefni sem efst eru á baugi varðandi náttúru- og umhverfisvernd.

Alls voru fulltrúar sjö samtaka á fundinum þar sem meðal annars var rætt um náttúrupassa, rammaáætlun og virkjanamál almennt, náttúruverndarlög, almannarétt, friðland í Þjórsárverum,  velferð og veiðar villtra dýra og áherslur sem stuðla að umhverfisvernd, auk annarra mála.

Auk ráðherra og fulltrúa samtakanna tóku ráðuneytisstjóri og skrifstofustjórar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins þátt í fundinum fyrir hönd ráðuneytisins. Áttu þessir aðilar góðar samræður um umhverfismál þar sem fjölbreytt sjónarmið um ýmsar hliðar umhverfismála komu fram. 

"" Frá fundi umhverfis- og auðlindaráðherra með fulltrúum félagasamtaka. .


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum