Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Þriðja úttekt OECD vegna umhverfismála á Íslandi langt komin

Frá fundi íslensku sendinefndarinnr með fulltrúum OECD og aðildarríkjanna.

Umhverfismál á Íslandi voru í brennidepli á fundi vinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar  (OECD) um umhverfismál í síðustu viku. Þá sat  sendinefnd Íslands fyrir svörum gagnvart nefndinni varðandi ýmis atriði í skýrslu stofnunarinnar vegna úttektar OECD á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi, sem nú er í vinnslu hjá stofnuninni (Iceland – Environmental Performance Review).

Þetta er þriðja úttekt OECD á umhverfismálum á Íslandi en stofnunin hefur framkvæmt slíkar úttektir á aðildarríkjum OECD frá árinu 1990. Síðasta úttekt Íslands af þessu tagi var gefin út í skýrslu OECD árið 2001. Að jafnaði eru 3-4 aðildarríki OECD tekin fyrir ár hvert með þessum hætti, en vinna við þriðju úttekt Íslands hófst í september 2012.

"Sex manna sendinefnd Íslands sat fyrir svörum." Sex manna sendinefnd Íslands sat fyrir svörum.


Í skýrslunni er fjallað um allar helstu stærðir og álagsþætti umhverfisins, en að þessu

"" Íslenska sendinefndin ásamt fulltrúum OECD.

sinni var auk þess lögð sérstök áhersla á ítarlega greiningu á því álagi sem orkugeirinn og ferðaiðnaðurinn hefur í vaxandi mæli í för með sér og endurspeglast m.a.  í aukinni umræðu um þolmörk álagssvæða á ferðamannastöðum.

Endanleg skýrsla OECD um stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi sl. 10-12 ár er væntanleg í september.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum