Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfisþing haldið 8. nóvember

Selárdalsfjara.

Umhverfis- og auðlindaráðherra boðar til VIII. Umhverfisþings í Hörpu í Reykjavík föstudaginn 8. nóvember 2013.

Þingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir, en til þess er sérstaklega boðið skv. lögum alþingismönnum, fulltrúum stofnana ríkis og sveitarfélaga og fulltrúum atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka sem hafa umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á stefnuskrá sinni. Umhverfisþing er haldið skv. ákvæðum náttúruverndarlaga, en þar segir að ráðherra skuli boða til umhverfisþings að loknum hverjum alþingiskosningum og síðan tveimur árum síðar. Skv. ákvæðum laga mun þingið að þessu sinni fjalla um sjálfbæra þróun. Drög að dagskrá verða birt síðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum