Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Veiðikortasjóði

Hreindýr.
Hreindýr.

Umhverfis- og auðlindaráðherra úthlutar fé til rannsókna af tekjum vegna sölu veiðikorta í samræmi við lög nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.    

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á stofnum villtra dýra sem undir áðurnefnd lög falla. Skriflegar umsóknir skulu berast ráðuneytinu,  Skuggasundi 1, 150 Reykjavík og með tölvupósti á [email protected], merktar Veiðikortasjóður 2012, fyrir 5. desember 2012.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að skila inn umsókn á sérstöku umsóknareyðublaði sem finna má á hér að neðan.     

Í umsókn um styrk úr Veiðikortasjóði skal umsækjandi greina frá efni og afmörkun fyrirhugaðra rannsókna, hverjir koma að rannsóknunum, skipulagi þeirra og áætluðum tímamörkum ásamt upplýsingum um menntun og/eða fyrri rannsóknir.

Til úthlutunar eru tekjur af sölu veiðikorta 2012.

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að senda inn umsóknir. Ráðuneytið mun að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og ráðgjafanefndar úthluta styrkjum eigi síðar en 31. janúar 2013.

Eyðublað fyrir umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði.

Verklagsreglur Veiðikortasjóðs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum