Fréttasafn

26.5.2010

Græna Bylgjan á Degi Líffræðilegrar fjölbreytni 

Gróðursetning í Gufunesi
Gróðursetning í Gufunesi
Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir, Magnús Gunnarsson formaður Skógræktarfélags Íslands og grunnskólabörn úr Reykjavík, ásamt Vigdísi Finnbogadóttur gróðursettu tré við Gufunesbæinn í Reykjavík þann 21. maí í tengslum við átakið Grænu bylgjuna á degi líffræðilegrar fjölbreytni.

Föstudaginn 21. maí stóðu Skógræktarfélag Íslands, Yrkjusjóður og umhverfisráðuneytið að viðburðum í tilefni alþjóðlegs dags líffræðilegrar fjölbreytni.

Á vegum samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika voru lönd heims hvött til að taka þátt í Grænu bylgjunni (Green Wave) sem er alþjóðlegt verkefni sem ætlað er að vekja athygli á fjölbreytni lífs á jörðinni í tengslum. Verkefnið snýst um að hvetja skólabörn um víða veröld til að gróðursetja tré og mynda þannig Græna bylgju um allan heiminn. Árið 2010 er jafnframt alþjóðlegt ár líffræðilegs fjölbreytileika og 20 ára afmæli Yrkjusjóðs.

Að þessu tilefni var íslenskum skólabörnum boðið að taka þátt í gróðursetningu. Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir tók þátt í gróðursetningu skólabarna í Reykjavík sem fram fór við Gufunesbæinn í Grafarvogi, ásamt Vigdísi Finnbogadóttir fyrrverandi forseta.  Auk þess mættu nemar í Landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna og tóku þátt í að gróðursetja með börnunum.

Græna bylgjan er með heimasíðu þar sem fjallað er um alla þá viðburði sem fram fóru þennan dag í heiminum og er þar að finna umfjöllun Íslands.

Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica