Fréttasafn

17.3.2010

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins heimsótt

Heimsókn til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Heimsókn til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra í heimsókn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti starfsfólk Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í gær og tók þátt í störfum þess. Umhverfisráðherra fékk kynningu á starfseminni og fylgdi sjúkraflutningamönnum í útköll. Á milli útkalla fékk umhverfisráðherra sérstaka kynningu á forvarnarstarfi sem ætlað er börnum og slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn æfðu björgun úr bíl að viðstöddum ráðherra.

Slökkviliðið sinnir fjölmörgum verkefnum, þ.á.m. slökkvistarfi, sjúkraflutningum og viðbrögðum við mengunaróhöppum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins nær til sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu og þau standa sameiginlega að rekstri liðsins. Umhverfisráðuneytið fer með yfirumsjón eldvarnarmála.

Heimasíða slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókn umhverfisráðherra.

Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica