Fréttasafn

15.3.2010

Vistvæn innkaupastefna hefur þegar skilað árangri

Vistvæn innkaup
Umhverfisráðuneytið, Ríkiskaup, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbær standa að verkefninu Vistvæn innkaup. Tilgangur þess er að aðstoða opinbera aðila að innleiða vistvæn innkaup á hagkvæman hátt.

Samkvæmt markmiðum ríkisstjórnarinnar verða umhverfisskilyrði sett í 60% útboða á vegum ríkisins á næsta ári og 80% útboða árið 2012. Þetta var meðal þess sem kom fram í ávarpi Svandísar Svavarsdóttur á ráðstefnu umhverfisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins um vistvæn innkaup sem fram fór fyrir skömmu.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra setti ráðstefnuna og síðan kynnti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra stefnu ríkisins í vistvænum innkaupum. Umhverfisráðherra sagði að vistvæn innkaupastefna hins opinbera væri þegar farin að skila árangri. Það mætti til dæmis merkja á því að talsverður fjöldi fyrirtækja hefði sótt um umhverfisvottun Svansins hjá Umhverfisstofnun og ein helsta ástæðan sem nefnd er fyrir umsóknum er aukinn þrýstingur frá opinberum aðilum.

Í stefnu ríkisins um vistvæn innkaup eru sett fram fjögur mælanleg markmið sem áhersla verður lögð á til næstu fjögurra ára. Í fyrsta lagi áðurnefnt skilyrði um hlutfall útboða með umhverfisskilyrðum, í öðru lagi að þróaðir verði mælikvarðar um efnahagslegan og umhverfislegan ávinning vistvænna opinberra innkaupa, í þriðja lagi að þrjár lykilstofnanir ríkisins ljúki 1. stigi við innleiðingu vistvænna innkaupa fyrir 1. mars 2011 og í fjórða lagi að allar ríkisstofnanir (A hluta) ljúki 1. stigi við innleiðingu vistvænna innkaupa fyrir lok ársins 2012.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar var Rikke Dreyer, verkefnisstjóri SKI, innkaupaþjónustu ríkis og sveitarfélaga í Danmörku. Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar kynnti vistvæn innkaup hjá Reykjavíkurborg og Erla Friðriksdóttir bæjarstjóri í Stykkishólmi talaði um vistvæn innkaup út frá sjónarhorni minni sveitarfélaga.

Hægt er að nálgast erindin á heimasíðu Vistvænna innkaupa.

Hér má nálgast ræðu umhverfisráðherra í heild sinni

Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica