Fréttasafn

22.2.2010

Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins 2009

Kuðungurinn
Kuðungurinn
Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði merki fyrir Kuðunginn og það fyrirtæki sem hlýtur viðurkenninguna hefur rétt til að nota merkið í eitt ár. Á hverju ári er svo fenginn nýr listamaður til að hanna nýjan Kuðung sem Kuðungshafinn fær til eignar.

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2009. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Kuðungsins þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa skarað fram úr á einu eða fleiri eftirtöldum sviðum: Umhverfisstjórnun, innleiðingu nýjunga í umhverfisvernd, hreinni framleiðslutækni, lágmörkun úrgangs, mengunarvörnum, umhverfisvænni vöruþróun, framlagi til umhverfismála eða vinnuumhverfi.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2009", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Úthlutunarnefnd Kuðungsins hefur verið skipuð. Í henni sitja Sigþrúður Jónsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Guðbergur Rúnarsson fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Íslenska Gámafélagið hlaut Kuðunginn á liðnu ári fyrir störf á árinu 2008.

Nánar um Kuðunginn.

Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica