Fréttasafn

Aðalskipulag Fljótsdalshéraðs undirritað

21.12.2009

  • Undirritun aðalskipulags Fljótsdalshéraðs
    Undirritun aðalskipulags Fljótsdalshéraðs
    Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði í dag nýtt aðalskipulag Fljótsdalshéraðs fyrir árin 2008-2028, sem sveitarfélagið vann í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Alta. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir undirbúning aðalskipulagsins hafa tekið langan tíma, enda hefðu lýðræðisleg vinnubrögð verið í hávegum höfð í skipulagsferlinu. Með ríku samráði við íbúa sveitarfélagsins hefði náðst skynsamleg lending í skipulagsmálum, sem vonandi muni tryggja að skipulagið lifi næstu 20 árin.

Svandís Svavarsdóttir fagnaði þessari nálgun sveitarfélagsins, enda væri gott aðalskipulag gífurlega mikilvægt til að þróa samfélag í átt til hagsældar. Í aðalskipulagi væri framtíðarsýn sveitarfélaga mótuð og því væri aðkoma almennings að skipulagsferlinu af hinu góða.

Deila grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica