Fréttasafn

20.11.2009

Umhverfisráðherra heimsækir Hekluskóga

Umhverfisráðherra heimsækir Hekluskóga
Skógur Skógræktar ríkisins í Þjórsárdal.
Jóhannes H. Sigurðsson, aðstoðarskógarvörður Skógræktarinnar á Suðurlandi, tók vel á móti hópnum með ketilkaffi og meðlæti.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti Hekluskóga í gær. Farið var um starfssvæði Hekluskóga í Þjórsárdal, Hafi og Árskógum í fylgd Hreins Óskarssonar, verkefnisstjóa Hekluskóga og fleiri starfsmanna og forsvarsmanna verkefnisins. Skoðuð voru örfoka svæði, nýleg uppgræðslusvæði og gróðursetningarreitir. Í lok ferðarinnar var skógur Skógræktar ríkisins í Þjórsárdal skoðaður. Hér má lesa frétt um heimsókn umhverfisráðherra á heimasíðu Hekluskóga.

Tilgangurinn með ræktun Hekluskóga er að endurheimta birkiskóga og víðikjarr í nágrenni Heklu sem minnka myndu vikurfok í kjölfar gjóskugosa úr eldfjallinu. Auk þess myndi skógurinn verja lönd fyrir jarðvegseyðingu, auka kolefnisbindingu og efla gróðurfar og dýralíf.

Heimasíða Hekluskóga.



Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica