Hoppa yfir valmynd
29. desember 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Bann við notkun ósoneyðandi efna

Ósonlagið yfir Suðurskautinu
Ósonlagið yfir Suðurskautinu

Umhverfisráðuneytið vekur athygli útgerðarmanna og eigenda báta og skipa á að frá 31. desember 2008 er óheimilt að hafa og nota halón 1301 slökkvikerfi um borð í skipum og bátum. Þá vekur umhverfisráðuneytið athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins.

Ósoneyðandi slökkvimiðlar

Notendur slökkvikerfa með halón 1301 þurfa að huga nú þegar að breytingum á slökkvikerfum sínum. Til eru á markaði staðgengilefni sem ekki eyða ósonlaginu.

Unnið hefur verið að því að hætta notkun halóns í skipum og bátum síðan árið 2002. Öll skip áttu að vera búin að fjarlægja halón 1301 úr vélarrúmum 1. janúar 2004. Síðla árs 2003 sótti Landssamband íslenskra útvegsmanna um undanþágu frá þessu ákvæði reglugerðarinnar. Skipum og bátum hefur verið veitt undanþága og frestur til að skipta út halón 1301 lengst til 31. desember 2008. Nú um áramót á því að vera lokið við að skipta út halóni 1301 í öllum skipum.

Ósoneyðandi kælimiðlar

Athygli innflytjenda og notenda ósoneyðandi kælimiðla (vetnisklórflúorkolefna) er vakin á því að árið 2009 er síðasta árið sem heimilt verður að flytja þessi efni inn til landsins. Efnin eru nánast eingöngu notuð á kæli- og frystikerfi skipa og einnig í minni kælibúnað í landi.

Jafnframt er athygli sömu aðila vakin á að samkvæmt gildandi reglugerð er heimilt að flytja inn endurunnin vetnisklórflúorkolefni til ársloka 2014. Á þessu gæti orðið breyting því að í drögum að nýrri reglugerð Evrópusambandsins er gert ráð fyrir að innflutningur á endurunnum HCFC kælimiðlum verði bannaður frá 1. janúar 2010. Gangi það eftir mun bannið gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og óheimilt yrði að flytja þessi efni inn frá svæðum utan þess.

Mikilvægt er að notendur þessara efna fari að huga nú þegar að breytingum á kæli- og frystikerfum sínum eða endurnýjun þeirra. Til eru á markaði kælimiðlar sem eyða ekki ósonlaginu. Mikilvægt er að huga að þessum breytingum í tíma svo ekki komi til stöðvunar fiskiskipaflotans vegna skorts á kælimiðlum þegar og ef reglugerð Evrópusambandsins tæki gildi.

Kælimiðlar 1995-2007

Ítarefni um ósonlagið:

Myndin sýnir hvernig innflutning ósoneyðandi kælimiðla
hefur minnkað. Notkun endurunninna kælimiðla sem hafa
vægari ósoneyðingarmátt (R-134a og HFC-blöndur) hefur aukist.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum