Fréttasafn

11.9.2008

Skýrsla um umhverfismál lögð fyrir Alþingi

Alþingi
Alþingi
Frumvarp umhverfisráðherra til laga um mannvirki var samþykkt á Alþingi í dag. 43 þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, fimm voru því andvígir og þrír sátu hjá.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi skýrslu um umhverfismál. Þetta er í fyrsta sinn sem slík skýrsla er lögð fram og með henni vill umhverfisráðherra upplýsa Alþingi um það starf sem unnið er í umhverfisráðuneytinu og efla umræðu um stöðu mála og stefnumótun í málaflokknum.

Í skýrslunni er farið í stuttu máli yfir sögu málaflokksins í stjórnsýslunni og stefnu ríkisstjórnarinnar í umhverfismálum en meginefni skýrslunnar er umfjöllun um nokkur mál sem eru ofarlega á baugi í starfi umhverfisráðuneytisins.

Skýrsla umhverfisráðherra til Alþingis um umhverfismál (pdf-skjal).



Deila grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica