Skipað hefur verið í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs
Umhverfisráðherra hefur skipað fjögur svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs. Í svæðisráðunum sitja sex fulltrúar: þrír fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem eru á viðkomandi rekstrarsvæði, einn fulltrúi tilnefndur af ferðamálasamtökum á viðkomandi svæði, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum.
Hlutverk svæðisráða Vatnajökulsþjóðgars fram að stofnun hans er að veita ráðgjöf við gerð reglugerðar um þjóðgarðinn og annan undirbúning. Auk þess munu formenn svæðisráðanna sitja í stjórn þjóðgarðsins.
Eftir að þjóðgarðurinn hefur verið stofnaður verður hlutverk svæðisráðanna að vera þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði, að vinna tillögu að verndaráætlun fyrir viðkomandi svæði, að gera tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði innan þess fjárhagsramma sem því er ætlaður hverju sinni samkvæmt ákvörðun stjórnar og að gera tillögu að ráðningu þjóðgarðsvarða á viðkomandi rekstrarsvæði.
Svæðisráð rekstrarsvæðis 1
Rúnar Þórarinsson, formaður, samkvæmt tilnefningu Norðurþings
Böðvar Pétursson, varaformaður, samkvæmt tilnefningu Skútustaðahrepps
Friðrika Sigurgeirsdóttir, samkvæmt tilnefningu Þingeyjarsveitar
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka
Ingvar Þóroddsson, samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Yngvi Ragnar Kristjánsson, samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Norðausturlands
Svæðisráð rekstrarsvæðis 2
Eiríkur Björn Björgvinsson, formaður, samkvæmt tilnefningu Fljótsdalshéraðs
Björn Ármann Ólafsson, varaformaður, samkvæmt tilnefningu Fljótsdalshéraðs
Magnhildur Björnsdóttir samkvæmt tilnefningu Fljótsdalshrepps
Skarphéðinn Þórisson samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka
Þórhallur Þorsteinsson samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Skúli Björn Gunnarsson samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Austurlands
Svæðisráð rekstrarsvæðis 3
Hjalti Þór Vignisson, formaður, samkvæmt tilnefningu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Björn Ingi Jónsson, varaformaður, samkvæmt tilnefningu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Guðrún Ingimundardóttir, samkvæmt tilnefningu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hrafnhildur Hannesdóttir, samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka
Skúli H. Skúlason, samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Sigurlaug Gissurardóttir, samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Austurlands
Svæðisráð rekstrarsvæðis 4
Elín Heiða Valsdóttir, formaður, samkvæmt tilnefningu Skaftárhrepps
Eydís Indriðadóttir, varaformaður, samkvæmt tilnefningu Ásahrepps
Sigurður Skúlason, samkvæmt tilnefningu Þingeyjasveitar
Ólafía Jakobsdóttir, samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka
Leifur Þorsteinsson, samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Erla Ívarsdóttir, samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Suðurlands

