Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Varðliðar umhverfisins

Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur boða til verkefnasamkeppni grunnskólabarna. Keppnin er ætluð ungu fólki í 5. til 10. bekk. Keppnin á að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingur, vídeó, hljóðverk o.s.frv. Í stuttu máli er fólki frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem umfjöllunarefni þeirra er umhverfismál í víðum skilningi þess orðs. Þátttakendur geta í verkefnum sínum t.d. fjallað um umhverfismál í nærumhverfi, landsvísu eða heimsvísu. Umfjöllunarefnið getur t.d. verið loftlagsbreytingar, röskun eða verndun búsvæða, jarðvegseyðing, orkumál, vatnsvernd, verndun náttúruauðlinda, förgun, endurvinnsla og endurnýting úrgangs, sjón-, efna- eða hávaðamengun.

Ef verkefni er skilað í formi ritgerðar þá skal hún vera á bilinu 2-3 blaðsíður í 14 punkta letri auk mynda eða teikninga eftir því sem við á. Verkefnin þurfa ekki að vera unnin sérstaklega fyrir samkeppnina heldur er vonast til að hún geti gefið nemendum og kennurum tækifæri til að koma á framfæri verkefnum sem þegar hafa verið unnin í skólanum. Stefnt er að því að samkeppnin verði álegur viðburður.

Skilafrestur verkefna er 20. mars 2007 og þeim skal skilað eða þau send umhverfisráðuneytinu Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt “Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur bestu verkefnin fyrir 5. apríl. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og valin verkefni verða verðlaunuð.

Nánari upplýsingar um verkefnasamkeppnina veita:

Guðmundur Hörður Guðmundsson, upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Sími 545 8699. [email protected]

Rannveig Thoroddsen, verkefnisstjóri Grænfána Landverndar. Sími 552 5242.
[email protected]

Helena Óladóttir, verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur. Sími 411 8535.
[email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum