Efst á baugi

Umhverfisráðherra afhendir Krakkakoti Grænfánann

1.12.2006

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra afhendir börnum á Krakkakoti Grænfánann
Grænfáninn
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra afhendir börnum á Krakkakoti Grænfánann.

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra afhenti náttúruleikskólanum Krakkakoti á Álftanesi Grænfánann í dag. Það var í fyrsta skipti sem Jónína afhenti fánann síðan hún hóf störf sem umhverfisráðherra.

Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Landvernd stýrir Grænfánaverkefninu hér á landi. Markmið verkefnisins er m.a. að minnka úrgang frá skólum, auka umhverfisvitund innan skólans og veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.  




Þetta vefsvæði byggir á Eplica