Efst á baugi

Hólanemar heimsækja umhverfisráðuneytið

3.11.2006

Danfríður Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála, kynnir aðgerðir íslenskra stjórnvalda í sjálfbærri þróun.
Hólanemar
Danfríður Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu sjálfbærrar þróunar og alþjóðamála, kynnir Hólanemum aðgerðir íslenskra stjórnvalda í sjálfbærri þróun.

Nemendur í umhverfisfræðum ferðamála við ferðamáladeild Hólaskóla heimsóttu umhverfisráðuneytið í dag og kynntu sér starfsemi þess. Nemendurnir heimsóttu einnig Landvernd í för sinni, Farfuglaheimilið í Reykjavík sem hefur fengið Norræna umhverfismerkið og Hópbíla sem starfa samkvæmt umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Á meðal þess sem Hólanemar fræddust um í heimsókn sinni í umhverfisráðuneytið voru tillögur að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og aðgerðir íslenskra stjórnvalda í sjálfbærri þróun.


Efst á baugi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica