Efst á baugi

Ráðherra heimsækir Metan og Endurvinnsluna

20.10.2006

Ráðherra
Metan
Ráðherra á spjalli við Ögmund Einarsson, framkvæmdastjóra Sorpu, í húsnæði Metan. Með þeim á myndinni eru Inga Jóna Þórðardóttir, stjórnarformaður Metan, og Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður ráðherra.

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra heimsótti í dag fyrirtækin Metan og Endurvinnsluna. Í húsnæði Metan á Álfsnesi var ráðherra kynnt hvernig fyrirtækið safnar hauggasi sem myndast við rotnun lífrænna úrgangsefna á urðunarstað SORPU. Gasið er síðan selt til að framleiða orku og sem eldsneyti á bíla. Mestur umhverfisávinningur af notkun metans sem eldsneytis er í næsta umhverfi bifreiða vegna hreinni útblásturs en að auki dregur notkun metans úr losun gróðurhúsalofttegundarinnar koldíoxíðs.
Í Endurvinnslunni kynnti Eiríkur Hannesson framkvæmdastjóri rekstur fyrirtækisins. Í máli hans kom m.a. fram að frá því að yfir 80% af skilagjaldskyldum umbúðum berast aftur til Endurvinnslunnar.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica