Efst á baugi

Umhverfisráðuneytið og HR undirrita samstarfssamning

11.9.2006

Undirritun samstarfssamnings
Undirritun samstarfssamnings
Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, og Sigurður Tómas Magnússon undirrita samninginn.

Umhverfisráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík gerðu nýlega með sér starfsnámssamning og munu nemendur lagadeildar skólans í kjölfarið stunda starfsnám í ráðuneytinu. Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu og Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR, undirrituðu samninginn. Greint er frá þessu á vef HR.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica