Efst á baugi

Starfshópur um gamlar námur skilar tillögum sínum

5.7.2004

Síðast liðið haust skipaði ráðherra starfshóp til að gera tillögur um það með hvaða hætti væri hægt að binda leyfum töku efna úr eldri námum. Starfshópurinn skilaði tillögum til ráðherra þann 2. mars s.l. 

Leggur hann til að gerðar verði breytingar á lögum nr. 44/1999 um náttúruvernd og skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, þannig að sömu reglur gildi um alla efnistöku hvort sem er á nýju efnistökusvæði eða gömlu. 

Starfshópurinn leggur til að efnistaka á eldri efnistökusvæðum verði gerð framkvæmdaleyfisskyld í tveimur áföngum.

Greinargerð starfshópsins.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica