Efst á baugi

Tiltekt í ráðuneytinu

19.5.2004

Almenna skrifstofan fagnar sigri.
img_2321
Almenna skrifstofan fagar sigri á tiltektardegi 2004

Síðastliðinn föstudag var haldinn tiltektardagur í umhverfisráðuneytinu. Starfsmenn fengu sérmerkta tiltektarboli og hollan morgunverð áður en hafist var handa. Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og vel skipulagður af undirbúningsnefndinni. Dómnefndin að störfumÍ lok dagsins kvað sérskipuð dómnefnd upp þann úrskurð að starfsmenn Almennu skrifstofunnar hefðu staðið sig best í tiltektinni og var þeim afhentur farandbikar og verðlaunapeningar til eignar. Starfsmenn hinna skrifstofanna sátu eftir með sárt ennið og lofuðu sjálfum sér og öðrum að taka tiltektardaginn með trompi á næsta ári.


Efst á baugi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica