Efst á baugi

Umhverfisráðherra heimsótti fuglafriðland

8.6.2010

Fuglafriðlandið í Flóa
Fuglafriðlandið í Flóa
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Hólmfríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri Fuglaverndar.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra heimsótti fuglafriðlandið í Flóa fyrir skömmu. Fuglaverndarfélag Íslands bauð ráðherra í fuglaskoðun og heimsókn í nýja fuglaskoðunarskýlið í friðlandinu. Jón Hjartarson forseti bæjarstjórnar Árborgar bauð ráðherra velkominn og sagði frá samstarfi Fuglaverndar og Árborgar við uppbyggingu friðlandsins. Jón sagði frá mikilvægi svæðisins og hvernig unnið væri að áætlun um endurheimt og verndun votlendisins á svæðinu. Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar, tók svo við og sagði frá fuglategundum í friðlandinu.

Frétt á heimasíðu Árborgar.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica