Efst á baugi

Óskað eftir tilnefningum til Varðliða umhverfisins

18.3.2010

Nemendur Snælandsskóla í Hjólaríi.
Varðliðar úr Snælandsskóla
Nemendurnir úr Snælandsskóla voru útnefndir Varðliðar umhverfisins á Degi umhverfisins í fyrra fyrir verkefni sem hafði það að markmiði að endurnýta hjól og auka áhuga nemenda og kennara á notkun reiðhjóla. Af því tilefni var hópnum boðið í hjólreiðaferð og keilu. Nemendur í Grunnskóla Siglufjarðar voru líka útnefndir Varðliðar í fyrra fyrir verkefni sem gekk m.a. út á að fylgjast með ferðum jaðrakana og merkja fugla.

Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur óska eftir tilnefningum til Varðliða umhverfisins 2010, verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Skilafrestur verkefna er til 25. mars 2010 og þau skal senda umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og valin verkefni verða verðlaunuð af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2010.

Nánar um keppnina og fyrri verðlaunahafa.


Efst á baugi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica