Efst á baugi

Fræðslumyndband um hóflega rjúpnaveiði

29.10.2009

Frumsýning myndbands um hófsama rjúpnaveiði.
Frumsýning í umhverfisráðuneytinu
Frá vinstri: Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlindasviðs Umhverfisstofnunar, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands og Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Fræðslumyndband um hóflega rjúpnaveiði var frumsýnt í sjónvarpi í gær. Myndin er samstarfsverkefni Skotveiðifélags Íslands, umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar.

Í myndinni er fjallað um sjálfbærar veiðar á rjúpum. Fjallað er um sögu rjúpnaveiða hér á landi og ástæður fækkunar í rjúpnastofninum. Þá er einnig fjallað um þær aðferðir sem beitt hefur verið til að byggja stofninn upp aftur og framtíðarnýtingu hans.

Hægt er að skoða myndina á vef Ríkissjónvarpsins og á heimasíðu Skotveiðifélags Íslands.

Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst föstudaginn 30. október og stendur til sunnudagsins 6. desember. Veiðar eru heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu. Sölubann gildir áfram á rjúpu og öllum rjúpnaafurðum. Áfram er friðað fyrir veiði á ákveðnu svæði á Suðvesturlandi. Rjúpnaskyttur eru sem fyrr hvattar til að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar. Virkt eftirlit verður með veiðunum á landi og úr lofti.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica