Efst á baugi

Fróðleikur um pöddur

14.8.2009

Skógarmítill
Skógarmítill
Paddan hefur fundist fundist á allmörgum stöðum á landinu og nú er skógarmítill að öllum líkindum orðinn landlægur. Talið er að útbreiðsla hans sé að færast norðar með hlýnandi loftslagi. Skógarmítill er blóðsuga sem heldur sig í gróðri, einkum í skógarbotnum. Þegar hann vantar blóð skríður hann upp í gróðurinn og krækir sig við blóðgjafa, sem er oftast meðalstórt og stórt spendýr. Skógarmítill er varasamur því hann getur borið alvarlega sýkla í fórnarlömb sín. Ljósmynd: Erling Ólafsson.

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur opnað sérstakt vefsvæði á heimasíðu stofnunarinnar með fróðleik um pöddur. Stofnunin reynir með þessu að mæta auknum áhuga landsmanna á náttúru landsins. Á heimasíðu stofnunarinnar verður fjallað um pöddur af ýmsu tagi, tegundir sem lifa í íslenskri náttúru og görðum landsmanna, híbýlum og gripahúsum, útlendar tegundir sem flækjast til landsins með vindum, svo og tegundir sem slæðast með varningi. Sagt er frá útbreiðslu tegundanna utan lands sem innan, lífsháttum þeirra og ýmsum öðrum fróðleik sem kann að vekja áhuga.

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun, samdi textana og eru þeir byggðir á innlendum sem erlendum heimildum og upplýsingum sem varðveittar eru í gagnagrunni stofnunarinnar. Erling vinnur markvisst að því að ljósmynda pöddurnar og koma sér upp myndabanka með pöddumyndum.

Umfjöllun um pöddur á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica