Efst á baugi

Bók um áhrif kvenna á umhverfið

24.4.2009

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Guðrún G. Bergmann, höfundur bókarinnar Konur geta breytt heiminum með nýjum lífsstíl.
Á degi jarðar
Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Guðrún G. Bergmann, höfundur bókarinnar Konur geta breytt heiminum með nýjum lífsstíl.

Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tók við eintaki af bókinni Konur geta breytt heiminum með nýjum lífsstíl á samkomu hjá bókaútgáfunni Sölku á degi jarðar 22. apríl. Höfundur bókarinnar er Guðrún G. Bergmann. Bókin fjallar um þau áhrif sem konur geta haft á umhverfið og samfélagið, með því að beina innkaupum sínum og lífsmáta inn á grænni brautir.

Bókinni er pakkað í pakkað í maíssterkjufilmu sem framleidd er hjá Plastprent sérstaklega til þessara nota. Bókaútgáfan Salka mun framvegis hætta notkun plastefna í bókapökkun. Maíssterkja brotnar niður í náttúrunni og eyðist á 10 – 45 dögum.

Í tengslum við útgáfu bókarinnar verður opnuð heimasíðan www.graennlifsstill.is. Um er að ræða gagnvirkan vef þar sem verða ýmsir fróðleiksmolar og ráð um hollustu og umhverfisvernd; fylgst verður með nýjungum og umræðum á þessu sviði og síðan getur fólk sent inn sín eigin ráð, spurningar og reynslusögur.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica