Efst á baugi

Tímamót hjá Landmælingum

9.1.2009

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í heimsókn hjá Landmælingum
Hjá Landmælingum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra afhendir leikskólabörnum frá Akraseli viðurkenningu. Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga, fylgist með.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsótti Landmælingar Íslands í gær þegar haldið var upp á að tíu ár eru frá því að starfssemin var flutt á Akranes. Umhverfisráðherra afhenti meðal annars leikskólabörnum frá Akraseli viðurkenningu fyrir verkefni sem þau unnu um Ísland. Þá afhenti ráðherra starfsmönnum Fjöliðjunnar á Akranesi veggkort sem þakklætisvott fyrir góða og árangursríka samvinnu við innlímingu korta á tímabilinu 1999-2006. Talið er að um 400 manns hafi heimsótt Landmælinga Íslands og kynnt sér starfsemina þennan dag.

Heimasíða Landmælinga Íslands.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica