Efst á baugi

Afhentu umhverfisráðherra Flora Islandica

29.12.2008

Eggert Pétursson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Kristján B. Jónasson skoða bókina Flora Islandica.
Í umhverfisráðuneytinu
Eggert Pétursson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Kristján B. Jónasson skoða bókina Flora Islandica.

Eggert Pétursson myndlistarmaður og Kristján B. Jónasson útgefandi afhentu nýverið Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra fyrsta eintak bókarinnar Flora Islandica. Bókin er heildarsafn flóruteikninga Eggerts sem hann vann fyrir bókina Íslensk flóra með litmyndum eftir Ágúst H. Bjarnason sem kom út árið 1983. Alls teiknaði Eggert 271 litmynd í raunstærð af íslenskum háplöntum. Í Flora Islandica eru teikningarnar í fyrsta sinn gefnar út í heild sinni í upprunalegri stærð. Bókin er gefin út í 500 tölusettum og árituðum eintökum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica