Efst á baugi

Unnið að innleiðingu INSPIRE

10.12.2008

INSPIRE. Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun landupplýsinga.
INSPIRE
Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun landupplýsinga.

Tilskipun Evrópusambandsins um notkun og miðlun landupplýsinga (INSPIRE) tók gildi í maí á liðnu ári. Tilskipunin mun taka gildi hér á landi á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og nú er unnið að því í umhverfisráðuneytinu að undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar vegna þess. Áskilið er að tilskipunin verði innleidd í íslenska löggjöf fyrir 15. maí 2009.  

Markmið tilskipunarinnar er að samræma og samnýta opinberar landupplýsingar, einkum í þágu umhverfismála. Eitt af lykilatriðum tilskipunarinnar er átak við að gera opinberar landupplýsingar aðgengilegar á netinu.

Það er mat umhverfisráðuneytisins að með því að fylgja hugmyndafræði INSPIRE felist mikil tækifæri til umbóta og hagræðingar meðal opinberra stofnana hér á landi. Landmælingar Íslands hafa nýlega unnið greinargerð og tillögur fyrir umhverfisráðuneytið um innleiðingu INSPIRE hér á landi. Hér má nálgast skýrslu Landmælinga.

Upplýsingasíða Evrópusambandsins um INSPIRE.




Efst á baugi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica